Ár fra stofnun

Í dag er ár frá stofnun HS-Samtakana.

Ég vil þakka öllum sem hafa hjálpað okkur til að verða að því sem við erum í dag og hlökkum til framtíðarinnar :D

Katrín Aðalsteinsdóttir
Formaður HS-Samtakana

Posted in Fréttir | Leave a comment

Fyrirlestur

Einnig er hægt að finna viðburðinn á facebook

 

Posted in Fréttir | Leave a comment

Gleðinleg Jól

við óskum ykkur öllum gleðinlegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum stuðninginn á liðnu ári.

Posted in Fréttir | Leave a comment

afsláttur í Lyfju

Afsláttur félagsmanna af hjúkrunarvörum og lausasölulyfjum er orðinn virkur, fær félagsmaður 12 % afslátt af þessum vörum ásamt sýklalyfjum.
Gefa þarf upp kennitölu til að fá þennann afslátt

Posted in Fréttir | Leave a comment

Breytingar á stjórn

Breytingar hafa orðið á stjórn samtakana.

Þorsteinn Haukur Harðarson hefur stigið inn og tekur við starfið ritara.

 

Bjóðum við hann velkominn í stjórnina

Posted in Fréttir | Leave a comment

óskum eftir ritara í stjórn

Helga Árný Hreiðarsdóttir sagði stöðu sinni sem ritari lausri vegna mikilla anna og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.

óskum við þar með eftir ritara í stjórn

umsóknarfrestur er til 1.október og skulu umsóknir berast á e-mailið hs-samtokin@hs-samtokin.is

Posted in Fréttir | Leave a comment

Samstarf við Lyfju

HS-Samtökin hafa hafið samstarf við Lyfju

Félagsmenn okkar fá 12 % afslátt af sýklalyfjum og síðar í þessum mánuði fáum við 12 % afslátt af lausasölulyfjum og hjúkrunarvörum.

tilkynning verður send út til allra félagsmanna þegar afsláttur á lausasölulyfjum og hjúkrunarvörum verður virkur.

þegar félagsgjald er greitt þá sendum við kennitölu félagsmanns til Lyfju þar sem skráður er inn þessi afsláttur.

Hægt er að óska eftir því að við sendum ekki kennitöluna til Lyfju, en með því fæst enginn afsláttur.

Posted in Fréttir | Leave a comment

E-mail sem ég fékk sent í dag

 

Sæl verið þið öllsömul.

Já þetta er slæmt mál fyrir líkamlega og andlega heilsu ykkar og ef ég get eitthvað gert fyrir ykkur þá stendur ekki á mér þótt engu sé lofað.

Verð næst í Bústaðakirkju 6 sept kl.20.00 opið hús og allir velkomnir

Kveðja

Þg

Posted in Fréttir | Leave a comment

Breyting á stjórn

Breyting varð á stjórn samtakana í dag. Hildur Dögg og Laeila höfðu sætaskipti. Þar með er Hildur Dögg varamaður í stjórn og Laeila er gjaldkeri.

 

Minnum svo alla á að skoða Dv á morgun

Posted in Fréttir | Leave a comment

Fyrir vini okkar í Bretlandi

Bangsinn Heidi Sue sem er stytting fyrir Hidradenitis Suppurativa var hannaður af Monti Cole fyrir  samtökin HS Friends www.hsfriends.co.uk

Heidi Sue er á ferðalagi hringinn í kringum heiminn til að vekja athygli á sjúkdómnum.

Hægt er að fá bangsann fyrir einungins £10.00. Bangsinn er um 8 tommur á hæð þegar hann er sitjandi og er í fjólublárri peysu, merktri HS Friends framaná.
Hagnaður á sölu Heidi Sue rennur til BAHS, sem eru einu góðgerðasamtökin sem helga sig algjörlega Hidradenitis Suppurativa sjúkdómnum í Bretlandi.
Hægt er að senda póst á katrin@hs-samtokin.is til að panta bangsa.

Hægt er að ganga frá greiðslum í gegnum paypal og mun ég gefa upp allar upplýsingar þegar bangsi er pantaður.

Heidi Sue hefur einnig sína eigin  FB síðu!

https://www.facebook.com/group.php?gid=108970579157223

Posted in Fréttir | Leave a comment